Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.3.2024 16:41:10


Ξ Valmynd

5.1.4  Hvert er hámarkið hjá einhleypum?

Hámarksfjárhæð hjá einhleypum er samtals 500.000 kr. á ári. Fjárhæðin skiptist þannig að árlega mega 333.000 kr. vera af eigin framlagi þínu og 167.000 kr. af framlagi launagreiðanda. Þitt framlag má ekki heldur vera yfir 4% af  iðgjaldsstofni og framlag launagreiðanda ekki yfir 2% af iðgjaldsstofni (launum þínum). Fjárhæðin getur aldrei orðið hærri en greitt hefur verið til séreignarsjóðsins.  

Samtals á árunum 2014-2017 er heimildin 1.500.000 kr., þ.a. 999.000 kr. af þínu eigin framlagi og 501.000 kr. af framlagi launagreiðanda til að greiða inn á fasteignaveðlán. Þar sem heimildin hefur nú verið framlengd frá 1. júlí 2017 til 30. júní 2023 miðað við sömu fjárhæðir árlega þá verður hámarkið öll árin samtals 4.500.000 kr. Sömu hámörk gilda um inneign í séreignarsjóði sem heimilt er að taka út sem húsnæðissparnað allt til 31. desember 2024, að uppfylltum skilyrðum þar um.

Frá 1. júlí 2017 gilda lög nr. 111/2016, um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, fyrir þá sem ekki hafa átt slíkt húsnæði áður. Hámarksfjárhæð á hverju almanaksári er 500.000 kr. í tíu ár, eða samtals 5.000.000 kr. öll árin.
 

 

Fara efst á síðuna ⇑