LEIÐRÉTTINGIN
5.1.3 Er eitthvað hámark á fjárhæðum?
Já, það er bæði hámark á þeirri fjárhæð sem þú mátt greiða inn á fasteignaveðlán af eigin framlagi í séreignarsjóð og eins af framlagi launagreiðandans. Það skiptir líka máli hvort þú ert einhleypur eða átt maka. Sömu hámarksfjárhæðir gilda einnig ef þú vilt taka út séreignarsparnað til að kaupa/byggja íbúðarhúsnæði til eigin nota.