Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 29.3.2024 10:49:37


Ξ Valmynd

7.21  Viðbót við auðlegðarskattsstofn vegna endurreiknings hlutabréfaeignar - RSK 3.23

Við álagningu opinberra gjalda 2013 skal leggja auðlegðarskatt á framtalsskyldar eignir skv. 72. gr. tekjuskattslaga, eins og þær eru í árslok 2012. Að auki kemur viðbót við auðlegðarskattsstofn sem leiðir af endurreikningi á verðmæti hlutabréfa í eigu framteljenda í lok árs 2011. Gera skal grein fyrir endurreikningnum á eyðublaði RSK 3.23.
Úr tekjuskattslögunum nr. 90/2003
Í ákvæði XLVII til bráðabirgða í tekjuskattslögum, sem sett var með lögum 164/2011, er kveðið á um auðlegðarskatt. Hann skal leggja á „framtalsskyldar eignir skv. 72. gr. í lok áranna 2011, 2012 og 2013“ og er skatturinn lagður á gjaldárin 2012, 2013 og 2014.
Sérstakar reglur gilda um hlutabréfaeign einstaklinga, um það segir í 2. mgr. b-liðar:
Við ákvörðun auðlegðarskattsstofns skal telja hlutabréf í félögum sem skráð eru í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði fram á markaðsvirði í árslok. Sá sem á hlut í félagi sem ekki er skráð í kauphöll eða á skipulegum tilboðsmarkaði skal telja fram til auðlegðarskattsstofns hlutdeild sína í skattalegu bókfærðu eigin fé félagsins eins og það er talið fram í skattframtali félagsins fyrir rekstrarárin 2011 og 2012. Þann hluta virðis eignarhluta í félagi sem reiknað er á framangreindan hátt sem umfram er nafnverð eða stofnverð í árslok 2011 og 2012 skal telja fram í skattframtali 2013 og 2014 vegna þessarar viðbótareignar.
Um útreikning skattsins segir í h-lið bráðabirgðaákvæðisins:
Auðlegðarskattur manna reiknast þannig:
   1. Af auðlegðarskattsstofni einstaklings að 75.000.000 kr. og samanlögðum auðlegðarskattsstofni hjóna að 100.000.000 kr. greiðist enginn skattur.
   2. Af auðlegðarskattsstofni yfir 75.000.000 kr. að 150.000.000 kr. hjá einstaklingi og yfir 100.000.000 kr. að 200.000.000 kr. af samanlögðum auðlegðarskattsstofni hjóna greiðast 1,5%.
   3. Af því sem umfram er 150.000.000 kr. hjá einstaklingi og 200.000.000 kr. af samanlögðum auðlegðarskattsstofni hjóna greiðast 2%.
   Auðlegðarskattsstofn vegna stöðu eigna í árslok 2011 og 2012 skal endurreikna við álagningu opinberra gjalda 2013 og 2014 með tilliti til viðbótareignar skv. b-lið. Sá mismunur sem myndast við þann endurreikning og er umfram viðmiðunarmörk 1.–3. tölul. skal skattlagður við álagningu opinberra gjalda framangreindra ára.
Fjárhæðir og skatthlutfall sem hér koma fram gilda um álagningu á þá viðbót við auðlegðarskattsstofn sem leiðir af endurreikningi á hlutabréfaeign í árslok 2011.

Nánar:

 

Fara efst á síðuna ⇑