Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 02:28:51


Ξ Valmynd

7.22  Skýrsla lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.24

Leiðbeiningar með skýrslu lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.24

 
Skýrsla lögaðilans skal ná til allrar starfseminnar viðkomandi tekjuár. Í leiðbeiningunum er orðið “eigandi” notað um þá íslensku skattaðila sem eiga beint eða óbeint í lögaðila á lágskattasvæði (CFC-félagi). Til að fá úthlutað kennitölu fyrir CFC-félag þarf að snúa sér til fyrirtækjaskrár RSK og skila inn umsóknareyðublaði RSK 17.90.
Skila ber ársreikningi lögaðilans með skýrslunni.
 
Þessi skýrsla er unnin af:
Taka skal fram hver vinnur skýrsluna, ásamt upplýsingum um hvar bókhaldsgögn eru varðveitt og hvort unnt sé að leggja þau fram óski ríkisskattstjóri eftir því.
 
Bein eignarhlutdeild íslenskra eigenda í lögaðila á lágskattasvæði
Hér skal skrá nafn og kennitölu eigenda vegna beinnar eignarhlutdeildar, eignarhluta í árslok, hlutfall atkvæðisréttar í árslok og hlutdeild í úthlutuðum arði (fjárhæð og hlutfall af heildararðgreiðslu til íslenskra og erlendra eigenda). Hafi eigandi keypt eða selt hlut í erlenda lögaðilanum á rekstrarárinu skal haka í viðeigandi reit og gera sérstaklega grein fyrir þeim viðskiptum í athugasemdadálki. Tilgreina skal nafn seljanda og kaupanda ásamt dagsetningu viðskiptanna og eignarhluta.
 
Óbein eignarhlutdeild íslenskra eigenda gegnum erlend félög
Hér skal skrá nafn og kennitölu eigenda sem eiga óbeint í hinum erlenda lögaðila í gegnum erlent félag. Með óbeinu eignarhaldi er átt við það þegar eigandi á hlut í erlendu félagi sem á hlut í lögaðila sem hefur heimilisfesti í lágskattaríki í skilningi 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Það telst einnig óbeint eignarhald þegar fleiri félög standa á milli eigandans og lögaðilans. Ef eignarhald er flókið er æskilegt að láta skjal fylgja með skýrslunni sem skýrir eignarhald. Tilgreina skal eignarhluta, hlutfall atkvæðisréttar og hvort breyting hafi orðið á eignarhlutdeild á árinu. Ef um slíka breytingu er að ræða skal gera grein fyrir því í athugasemdakafla í hverju breytingin fólst. Til að finna út hver eignarhlutdeild er þegar um óbeina eign er að ræða, skal margfalda eignarhluta eiganda í „millilið“ og eignarhluta milliliðar í hinum erlenda lögaðila. Dæmi: Ef íslenskur eigandi á 50% í félagi A og það félag á 50% í lögaðila sem staðsettur er á lágskattasvæði er eignarhlutdeild eigandans 25% (0,5 x 0,5 = 0,25). Sama regla á við þegar fleiri félög eru í eignakeðjunni.
 
Samtals eignarhluti í íslenskri eigu/stýrður hluti
Hér skal tilgreina heildareignarhlutdeild íslenskra eigenda í hinum erlenda lögaðila, beina og óbeina (samtala reita 404 og 409), þó ekki óbeina eignarhlutdeild í gegnum íslensk félög. Einnig skal gera grein fyrir samtölu atkvæðisréttar íslenskra eigenda (samtala reita 405 og 410). Tilgreina skal yfirráðahlut ef íslenskir eigendur hafa í krafti hluthafasamnings, samþykkta, umboða o.s.frv., umráð yfir hlutum sem formlega eru í eigu erlendra aðila. Í athugasemdakafla skal gera grein fyrir því á hverju umráð byggja. Hér undir teljast einnig umráð sem leiða af óbeinu eignarhaldi. Þannig telst eigandi hafa umráð yfir hinum erlenda lögaðila eigi hann helmingshlut í félagi sem á helmingshlut í þeim lögaðila sem telst heimilisfastur á lágskattasvæði, skv. 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003, þrátt fyrir að eignarhlutdeild hans nemi 25% í því tilviki. Byggir það á því að aðilinn telst hafa umráð yfir félaginu eigi hann helmingshlut í því og telst þar af leiðandi hafa umráð yfir málefnum þess, m.a. þeim umráðum félagsins yfir hinum erlenda lögaðila sem hefur heimilisfesti í lágskattaríki. Tekið skal tillit til eigin hluta lögaðila á lágskattasvæði í þessu sambandi. Sem dæmi má nefna að ef 10% eignarhlutur er í eigu lögaðilans sjálfs nægir 45% eignarhlutdeild eigenda til þess að umráð yfir lögaðilanum teljast vera fyrir hendi.
 
Sundurliðun tekna
Hér skal gera grein fyrir samsetningu á tekjum lögaðilans. Nauðsynlegt er að gera skýran mun á eignatekjum annars vegar og rekstrartekjum hins vegar.
 
Rekstrarhagnaður/tap skv. ársreikningi
Hér skal gera grein fyrir rekstrarafkomu lögaðilans í þeirri mynt sem á er byggt í ársreikningi, meðalkaupgengi þess gjaldmiðils gagnvart ISK og afkomunni í ISK. Ef rekstur er einungis hluta úr ári skal miða við meðalkaupgengi þess tímabils.
 
Skattskyldur hagnaður skv. íslenskum reglum
Ekki þarf að fylla út þennan kafla ef ljóst er að lögaðilinn telst CFC-félag án frekari skoðunar. Í öðrum tilvikum þarf að leiða fram tekjuskattsstofn samkvæmt íslenskum reglum. Hafi eigandi erlends lögaðila sætt skattlagningu samkvæmt reglum 57. gr. a laga nr. 90/2003 á fyrra ári, en eigandi telur að það falli nú utan reglnanna svo sem vegna sérstakra frádráttarheimilda eða rekstrartaps á eftirfarandi tekjuári, skal gera grein fyrir rekstrarniðurstöðu hér. Þótt lögaðilinn teljist ekki vera CFC-félag er mælst til þess að þessi kafli sé fylltur út ef lögaðilinn er heimilisfastur í ríki sem almennt er talið til lágskattaríkja, s.s. ríki sem talin eru upp á lista á vefsíðu Fjármálaráðuneytisins yfir lágskattasvæði.
 
Samanburður skv. 2. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003
Í þessum kafla ber að gera grein fyrir annars vegar tekjuskatti sem greiddur var eða verður greiddur erlendis og hins vegar þeim tekjuskatti sem á hefði verið lagður skv. íslenskum lögum.
 
Eigið fé til skiptingar á eigendur
Vegna laga um auðlegðarskatt sem í gildi eru á Íslandi ber að gera grein fyrir eigin fé hins erlenda félags í ISK. Færa skal bókfært eigið fé skv. ársreikningi í ISK, reitur 416, nema félagið sé skráð í kauphöll eða á skipulögðum tilboðsmarkaði, þá skal miða við eigið fé á skráðu markaðsverði eftir að það hefur verið umreiknað í ISK, reitur 417.
 
Lista yfir lágskattasvæði má finna hér Ath. að listinn er þó hvorki bindandi né tæmandi.

 

Fara efst á síðuna ⇑