Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 20.4.2024 05:32:05


Ξ Valmynd

7.23  Skýrsla eiganda í lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.25

Leiðbeiningar með skýrslu eiganda í lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.25

 
Gera skal grein fyrir eignarhluta, atkvæðisrétti og mótteknum arði vegna beinnar eignarhlutdeildar. Ennfremur skal gera grein fyrir eignarhluta og atkvæðisrétti vegna óbeins eignarhalds. Sé um sérstaklega flókið eignarhald að ræða skal gerð grein fyrir því á sérstöku fylgiskjali.
 
Eingöngu ber að gera grein fyrir óbeinni eignaraðild þegar hún er í gegnum erlent félag. Gert er ráð fyrir því að skýrslan sé unnin út frá fyrirliggjandi upplýsingum á eyðublaði RSK 4.24.

Arður og áður skattlagðar tekjur
Gera skal grein fyrir mótteknum arði á tekjuárinu í reit 418. Hafi CFC tekjur áður verið skattlagðar koma þær til frádráttar og eru fyrirfram áritaðar í reit 428, samkvæmt framtali fyrra árs.
Áritaða fjárhæðin í reit 428 er uppsöfnuð heildarfjárhæð frá fyrri árum, þ.e. CFC tekjur sem búið er að skattleggja en hafa ekki áður komið til frádráttar á móti mótteknum arði. Þessi frádráttur er summa reita 422 og 427 í skýrslu fyrra árs.
Jákvæður munur er færður í reit 426. Ef eigandinn er einstaklingur skal niðurstöðutalan færð handvirkt sem arður af hlutabréfum á eyðublað RSK 3.19. Lögaðilar færa niðurstöðutölu í reit 4399 á RSK 1.04 og er sá flutningur sjálfvirkur í rafrænum skilum.
Neikvæður munur færist í reit 427 og flyst ekki á framtal eiganda. Fjárhæðin geymist til næsta árs og verður þá árituð sem frádráttur í reit 428.
 
Útreikningur á hagnaði/tapi
Í reit 421 skal færa hlutdeild eiganda í rekstrarafkomu lögaðilans, sbr. reit 413 á eyðublaði RSK 4.24. Þegar fundin er hlutdeild í hagnaðinum/tapinu skal byggja á eignarhlutdeild, en ekki atkvæðisrétti eða stýrðum hluta, sbr. reiti 401 og 407 á RSK 4.24.
Gera skal viðeigandi skattalegar leiðréttingar með hliðsjón af réttarformi eigandans (s.s. hlutafélag, sameignarfélag). Tap CFC félagsins frá fyrri árum er áritað í reit 429, samkvæmt reit 423 í skýrslu fyrra árs.

 
Jákvæður munur fer í reit 422 og færist sem hlutdeild í hagnaði í reit 4399 á RSK 1.04. Er það óháð arðsúthlutun á tekjuárinu.
Neikvæður munur fer í reit 423 sem tap CFC-félagsins.
 Það flyst ekki á framtal, enda ekki heimilt að færa það á móti rekstrartekjum eiganda, heldur eingöngu á móti hagnaði CFC-félagsins síðar. Verður það því áritað sem ónotað tap í reit 429 á næsta ári.
Ef tap er á rekstri CFC-félagsins, sem er frádráttarbært skv. lokamálslið 5. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003, má eigandi færa hlutdeild sína í því tapi á móti þeim hagnaði CFC-félagsins sem kemur til skattlagningar hjá eiganda síðar.
 
Hrein eign til færslu á skattframtal
Eiganda ber að færa hlutdeild sína í eigin fé lögaðilans til eignar á skattframtali sínu. Hlutdeildin reiknast út frá samtölu í reit 416 eða 417 á eyðublaði RSK 4.24 eftir því sem við á.
Hafi hlutdeild lögaðila í hreinni eign CFC félags ekki verið færð á skattframtal á raunvirði/markaðsvirði þarf að skrá það í töfluna „Hlutabréfaeign í erlendum félögum“. Á skattframtali einstaklings skal færa raunvirðið á eyðublað RSK 3.23.

 

Fara efst á síðuna ⇑