Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 14:29:42


Ξ Valmynd

7.13  Námsmenn erlendis - skattaleg heimilisfesti

Með skattalegri heimilisfesti eru námsmanni tryggð réttindi til að vera skattlagður eins og hann hefði verið heimilisfastur hér á landi allt árið. Þetta þýðir að við skattlagningu er tekið tillit til þess skattafsláttar og bóta sem hann ætti rétt á ef lögheimili hans hefði verið hér á landi. Tekjur og eignir erlendis hafa áhrif á skattlagninguna og barnabætur eða hliðstæðar greiðslur erlendis koma til lækkunar á barnabótum hér á landi.
Fylla þarf út eyðublað RSK 3.26 vegna óskar um skattalega heimilisfesti.

Nánar:

 

Fara efst á síðuna ⇑