Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 26.4.2024 01:37:22


Ξ Valmynd

7.4.2  Söluhagnaður vegna íbúðarhúsnæðis

Hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis í eigu manns er mismunur söluverðs, þegar sölukostnaður hefur verið dreginn frá, og stofnverðs, þ.e. kostnaðar- eða kaupverðs. Þar sem ákvæði um verðleiðréttingar hafa verið felld niður úr skattalögum er aðeins heimilt að framreikna stofnverð við útreikning söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis til ársloka 2001.
 
 
Tvennt getur haft áhrif til lækkunar stofnverðs en það er:
  • áður fenginn söluhagnaður
  • skattfrjáls eigin vinna.
Frestun um tvenn áramót
Ef íbúðarhúsnæði er selt og seljandi hefur ekki átt íbúðina í full tvö ár er söluhagnaðurinn skattskyldur. Hafi hann keypt eða hafið byggingu íbúðarhúsnæðis á árinu getur hann óskað eftir að söluhagnaðurinn verði færður til lækkunar á stofnverði þess. Hafi það ekki verið gert er hægt að óska eftir frestun á skattlagningu söluhagnaðar um tvenn áramót frá söludegi.
 
 
Sé keypt eða hafin bygging á nýju íbúðarhúsnæði, í síðasta lagi á öðru ári eftir söluár, er söluhagnaðurinn ekki skattlagður en færist til lækkunar á stofnverði nýrrar íbúðar. Sé stofnverð nýju eignarinnar lægra en sem nemur fjárhæð söluhagnaðar færist mismunur sem fjármagnstekjur á kaupári nýju eignarinnar. Ef eignar er ekki aflað innan tilskilins tíma færist söluhagnaðurinn með skattskyldum fjármagnstekjum á öðru ári eftir að hann myndaðist.

 

Fara efst á síðuna ⇑