Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 20.4.2024 13:38:46


Ξ Valmynd

7.13.2  Umsókn um skattalega heimilisfesti

Umsókn um skattalega heimilisfesti
Sækja þarf um skattalega heimilisfesti á eyðublaði RSK 3.26, sem fylgja skal skattframtali.
 
 
Vottorð um nám erlendis
Árlega þarf að leggja fram staðfestingu frá skóla þar sem fram kemur:
  • hvaða nám var stundað og hve lengi á tekjuárinu
  • hvenær nám hófst
  • áætluð námslok
Upplýsingar um tekjur erlendis
Námsmaður og maki hans þurfa að leggja fram staðfestingu um tekjur eða tekjuleysi erlendis frá viðkomandi skattyfirvöldum. Nægilegt er að leggja fram:
  • staðfest ljósrit af erlendum framtölum ef tekjur koma þar fram eða
  • skriflegt tekjuvottorð frá erlendum skattyfirvöldum eða
  • erlenda álagningarseðla eða staðfestingu á skattauppgjöri.
Einnig skal fylgja með framtali staðfesting á barnabótum eða sambærilegum greiðslum, fengnum erlendis á tekjuárinu.
 
Námsmenn erlendis fá ekki sent áritað framtal. Fyrir þá er því afar hentugt að telja fram á vefnum. Upplýsingar um vefframtalið og veflykla eru í kafla 1.8.2. Vilji þeir skila á pappír er hægt að prenta út öll fylgiskjöl með framtali á rsk.is eða snúa sér til skattstofu til að fá nauðsynleg eyðublöð. Á framtali þarf að koma fram póstfang námsmannsins erlendis eða umboðsmanns hér á landi og hvert hafi verið síðasta lögheimili námsmanns hér á landi.
 
 
Réttindi veitt í eitt ár í senn
Námsmaður sem óskar eftir að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti þarf að sækja um það á framtali á hverju ári sem námið er stundað. Leggja þarf fram nýjar upplýsingar um námið á hverju ári ásamt staðfestingu frá skóla, tekjuvottorði frá skattyfirvöldum erlendis og staðfestingu um barnabætur erlendis.
 
 
Ríkisskattstjóri annast ákvörðun
Ríkisskattstjóri tekur ákvörðun um rétt námsmanns til að halda skattalegri heimilisfesti á Íslandi. Almennar reglur um kærur til skattyfirvalda gilda í þessum tilvikum. Ef ríkisskattstjóri fellst ekki á að veita skattalega heimilisfesti er skattlagning miðuð við takmarkaða skattskyldu, þ.e. námsmaðurinn er einungis skattlagður hafi hann haft tekjur hér á landi eftir að lögheimili hefur verið flutt frá landinu.

 

Fara efst á síðuna ⇑