Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 23.4.2024 15:35:59


Ξ Valmynd

7.12  Erlendis búsettir

Erlendis búsettir sem hafa tekjur eða eiga eignir hér á landi
 
Einstaklingar búsettir erlendis sem bera hér á landi takmarkaða skattskyldu samkvæmt 3. grein skattalaganna, vegna tekna, t.d. af útleigu íbúðarhúsnæðis eða sölu hlutabréfa hér á landi, skulu skila framtali þar sem gerð er grein fyrir þessum tekjum á þriðju síðu framtals í lið 3.7, reit 510.
 
Ef um útleigu íbúðarhúsnæðis er að ræða skal telja fram brúttóleigutekjur án frádráttar í reit 510. Neikvæður mismunur færist ekki á framtal. Gera skal grein fyrir nýtingu íbúðarhúsnæðis sem ekki gefur af sér tekjur í lið 1.4. Frítekjumark vegna útleigu á íbúðarhúsnæði sem nemur 30% af leigutekjum er ákvarðað við álagningu. Athugið að sérregla um frádrátt leigugjalds frá leigutekjum vegna tímabundinnar útleigu íbúðarhúsnæðis til eigin nota á einungis við ef framteljandi hefur skattalega heimilisfesti hér á landi.
 
Nauðsynlegt er að fram komi að framteljandi eigi lögheimili erlendis. Jafnframt skal tilgreina póstfang umboðsmanns hans á Íslandi.

 

Fara efst á síðuna ⇑