Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 25.4.2024 21:12:44


Ξ Valmynd

7.4.3  Dreifing söluhagnaðar

Ef hluti söluandvirðis er greiddur með skuldabréfi til minnst þriggja ára er heimilt samkvæmt 27. gr. skattalaga, að dreifa þeim hluta söluhagnaðarins sem svarar til hlutdeildar skuldabréfanna í heildarsöluverði til skattlagningar á afborgunartíma bréfanna, þó að hámarki sjö ár. Til skuldaviðurkenningar í þessu sambandi teljast ekki þær skuldir sem hvíla á hinni seldu eign og kaupandi tekur að sér að greiða.

Heimild til dreifingar fellur niður ef skuldaviðurkenning er seld.

 

Fara efst á síðuna ⇑