Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.3.2024 11:44:00


Ξ Valmynd

7.11.3  Vaxtatekjur og arður erlendis

Telja skal hvers konar vaxtatekjur fram í 3. kafla framtals (3.2. vaxtatekjur af bankainnstæðum og 3.3. af skuldabréfum). Hafi framteljandi vaxtatekjur frá ríki sem Ísland hefur gert tvísköttunarsamning við er mismunandi hvort tekjurnar séu að fullu skattskyldar á Íslandi eða að hluta. Séu vaxtatekjurnar skattskyldar í greiðsluríki eða komi frá ríki sem Ísland hefur ekki gert tvísköttunarsmning við og skattur hefur verið lagður á þær, ber Íslandi að taka tillit til greidds skatts erlendis. Sýna þarf fram á skattgreiðslur af vaxtatekjum, með viðeigandi gögnum, sem koma frá ríkjum sem ekki er tvísköttunarsamningur við. Vaxtatekjur eru umreiknaðar í íslenskar krónur miðað við kaupgengi þess tímabils sem vaxtatekjurnar féllu til.
 
Upplýsingar um gengi gjaldmiðla má fá á heimasíðu Seðlabankans, sedlabanki.is

Gera skal grein fyrir arði af erlendum hlutabréfum á hlutabréfablaðinu RSK 3.19 og færa niðurstöður í lið 3.6 á framtali (í vefframtali er þessi flutningur sjálfvirkur). Hafi verið greiddir skattar erlendis af arðinum skal gera grein fyrir þeim skattgreiðslum í athugasemdadálki í lið 1.4. Umreikna skal arðinn og skattgreiðslur í íslenskar krónur miðað við kaupgengi eins og það var þegar arðurinn var greiddur. Jafnframt skal láta fylgja með staðfestingu um greidda skatta erlendis.

 

Fara efst á síðuna ⇑