Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.3.2024 10:12:38


Ξ Valmynd

7.19.3  Opinberir styrkir og útreikningur frádráttar

Skattfrádráttur
Frádrátturinn er 20% af styrkhæfum kostnaði. Hámark kostnaðar til útreiknings á frádrætti er 300 mkr. vegna gjaldfærðs kostnaðar en 450 mkr. samtals ef um er að ræða aðkeypta rannsóknar- og þróunarvinnu. Af því leiðir að skattfrádráttur framteljanda, sem færist í reit 0988 á framtali, getur að hámarki orðið 90 milljónir króna. Þetta hámark gildir um hvert fyrirtæki, hvort sem það er eigandi að einu nýsköpunarverkefni eða fleirum.

Fengnir opinberir styrkir
Ef verkefnið nýtur opinberra styrkja takmarkast skattfrádrátturinn þannig að frádrátturinn og fengnir opinberir styrkir geta samanlagt ekki orðið hærri en tiltekið hlutfall af styrkhæfum kostnaði. Hlutfallið ræðst að stærð fyrirtækis og tegund kostnaðar. Fyrir rannsóknarverkefni er hlutfallið hærra ef niðurstöðum er dreift og þær birtar ókeypis og opinberlega.
Stærð fyrirtækis
Þróunarverkefni
Rannsóknarverkefni
Ranns./opinber birting
Lítið
45%
70%
80%
Meðalstórt
35%
60%
75%
Stórt
25%
50%
65%

Stærð fyrirtækja

  • Lítið fyrirtæki er með færri en 50 starfsmenn og árlega veltu undir €10 milljónum og/eða efnahagsreikning undir €10 milljónum.
  • Meðalstórt fyrirtæki er með 50-250 starfsmenn og árlega veltu undir €50 milljónum og/eða efnahagsreikning undir €43 milljónum.
  • Stórt fyrirtæki er með fleiri en 250 starfsmenn.
Greiðsla skattfrádráttar
Skattfrádráttur kemur til lækkunar á álögðum tekjuskatti við álagningu opinberra gjalda lögaðila. Sé álagður tekjuskattur lægri en ákvarðaður skattfrádráttur er mismunurinn greiddur út.

 

Fara efst á síðuna ⇑