Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 3.12.2024 17:32:02


Ξ Valmynd

7.8.5  Lækkun vegna framfærslu námsmanns

Hægt er að sækja um lækkun ef framteljandi hefur á framfæri sínu námsmann í framhaldsskóla, sem ekki hefur nægar tekjur sér til framfærslu. Hér er einkum átt við námsmenn á aldrinum 16-21 árs. Ef ungmenni er í lánshæfu námi (skv. reglum LÍN) kemur lækkun ekki til álita.

Sótt er um með því að fylla út lið 1.3 á forsíðu skattframtals (í vefframtali er þessi liður einnig birtur sem kafli í eyðublaði RSK 3.05).

Hámarks lækkun á tekjuskatts- og útsvarsstofni við álagningu 2019 er 382.000 kr., ef námsmaður er tekjulaus. Frá þessari fjárhæð er dreginn 1/3 af tekjum námsmannsins, þannig að réttur framfæranda til ívilnunar fellur niður ef tekjurnar eru umfram 1.146.000 kr. á árinu 2018.

Ungmenni sem ekki er í námi
Sjá kafla 7.8.4 um ívilnun vegna framfærslu ungmennis sem ekki er í námi.

 

Fara efst á síðuna ⇑