Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 25.4.2024 19:52:23


Ξ Valmynd

1.1.2  Dæmi B

Einstaklingur kaupir sína fyrstu íbúð í október 2017. Hefur greiðslur í séreignarsjóð í desember sama ár og sækir um að ráðstafa inn á lán.


Tímalína

 
  •  

    1. júlí 2017

    Nýjar reglur um heimild til að taka út séreignarsparnað vegna kaupa á fyrstu íbúð taka gildi.

    Í þessu dæmi á viðkomandi hvorki íbúð né hefur hafið greiðslur í séreignarsjóð á þessum tímapunkti.

  •  

    Október 2017

    Viðkomandi undirritar samning um kaup á sinni fyrstu íbúð.

    Greiðslur í séreignarsjóð hafa ekki hafist enn.

  •  

    Desember 2017

    Viðkomandi byrjar að greiða í séreignarsjóð af launum sínum.

  •  

    Október 2018

    Umsóknarfrestur rennur út. Sækja þarf um innan tólf mánaða frá undirritun kaupsamnings.

    Samfellt 10 ára tímabil getur í þessu dæmi hafist frá og með desember 2017, er viðkomandi hóf greiðslur í séreignarsjóð eða síðar.


 

Fara efst á síðuna ⇑