Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 08:08:31


Ξ Valmynd

1.1.4  Dæmi D

Einstaklingur sem keypti sína fyrstu íbúð á tímabilinu 1. júlí 2014 til og með 30. júní 2017 og nýtti sér ekki eldri heimild til að taka út séreignarsparnað


Tímalína

 
  •  

    1. júlí 2014

    Eldri heimild til að taka út séreignarsparnað vegna öflunar á íbúðarhúsnæði tók gildi.

    Í þessu dæmi átti viðkomandi ekki íbúð á því tímamarki.

  •  

    Júní 2016

    Viðkomandi undirritar kaupsamning um kaup á sinni fyrstu íbúð og sækir ekki um að taka út séreignarsparnað vegna þess eða greiða inn á lán.

  •  

    1. júlí 2017

    Nýjar reglur um heimild til að taka út séreignarsparnað vegna kaupa á fyrstu íbúð taka gildi.

  •  

    31. desember 2017

    Vilji viðkomandi nýta sér nýjar reglur um greiðslu inn á veðlán í samtals tíu ár frá því að ráðstöfun séreignarsparnaðar hófst þarf hann að sækja um það fyrir lok árs 2017 og má þá ráðstafa séreignarsparnaði samfellt í 10 ár.

    Sé það ekki gert fellur heimild til að greiða inn á lán niður miðað við 30. júní 2021 kjósi viðkomandi að ráðstafa séreignarsparnaði skv. eldra úrræði.

 

Fara efst á síðuna ⇑