7.10.4 Stuðningsfjölskyldur
Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa til frádráttar beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna, enda sé lögð fram sundurliðun um sannanlegan kostnað. Í stað sundurliðaðs kostnaðar er heimilt að færa fæðisfrádrátt eftir sömu reglum og heimilað er vegna dagvistunar barna, sbr. tölulið 1 hér að framan. Í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka o.þ.h. má færa 25% af tekjum, öðrum en tekjum vegna fæðissölu ef um dagvistun er að ræða, en 20% ef um sólarhringsvistun er að ræða. Kostnað sem leiðir af sérþörfum barnsins vegna fötlunar má færa til frádráttar, auk frádráttar samkvæmt mati ríkisskattstjóra, enda sé gerð sérstök grein fyrir honum.