Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 27.4.2024 13:38:10


Ξ Valmynd

7.3.2  Frádráttur frá dagpeningum erlendis

Frádráttur frá dagpeningum erlendis, tekjuárið 2013:
 
 
Almennir dagpeningar:
 
 
 
Janúar - desember:
 
 
 Gisting
 Annað
Flokkur 1:  Moskva, New York borg,  Washington DC, Singapúr, Tókýó
SDR
187
125
Flokkur 2:  Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl
SDR
159
106
Flokkur 3:  Amsterdam, Aþena, Barselóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupm.höfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín, Bandaríkin (nema New York borg  og Washington DC)
SDR
141
94
Annars staðar
 
SDR
125
83
 
Vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa:
 
 
 
 
Janúar - desember:
 
        
 Gisting
Annað 
Flokkur 1:  Moskva, New York borg,  Washington DC, Singapúr, Tókýó
SDR
120
80
Flokkur 2:  Dublin, Istanbúl, Japan (nema Tókýó), London, Lúxemborg, Mexíkóborg, Seúl
SDR
102
67
Flokkur 3:  Amsterdam, Aþena, Barselóna, Brussel, Genf, Helsinki, Hong Kong, Kanada, Kaupm.höfn, Madrid, Osló, París, Róm, Stokkhólmur, Vín, Bandaríkin (nema New York borg  og Washington DC)
SDR
90
60
Annars staðar
SDR
80
54
 
 
Þegar dagpeningar eru umreiknaðir í íslenskar krónur skal miðað við sölugengi eins og það var í lok ferðar. Gengi má finna á www.sedlabanki.is.
 
Almennir dagpeningar - þrjár vikur eða lengur
Sé dvalist skemur en þrjár vikur á sama stað skal draga frá fulla almenna dagpeninga.
 
Sé dvalist þrjár vikur eða lengur á sama stað breytist leyfilegur frádráttur þannig að heimilt er að færa fulla dagpeninga til frádráttar fyrstu vikuna en eftir það lækkar fjárhæðin og verður sú sama og dagpeningar vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.
 
Þjálfun, nám eða eftirlitsstörf í þrjá mánuði eða lengur
Fari dvöl erlendis vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa fram úr þremur mánuðum skal frádráttur á móti dagpeningum lækka um 25% þann tíma sem dvalist er erlendis umfram þrjá mánuði.
 
Vinna erlendis
Sé dvöl launþega erlendis vegna tímabundinna starfa þar á vegum íslensks launagreiðanda, eiga reglur um frádrátt á móti dagpeningum vegna ferðalaga ekki við. Honum er þá heimilt að draga frá sérgreindum greiðslum, sem hann kann að hafa fengið vegna uppihalds í allt að 3 ár, fjárhæð sem hæst getur orðið 30 SDR á dag. Skiptir ekki máli í þessu sambandi þó launþegi komi í stuttar heimsóknir hingað til lands á umræddu tímabili.
 
Hafi starfsmaður fengið greidda dagpeninga fyrir samfellda dvöl 30 daga eða lengur á árinu 2013 skulu viðmiðunarfjárhæðir hér að framan lækka um 10 SDR fyrir hvern dag sem dagpeningagreiðslur fara fram yfir 30 daga samfellt. Gildir það bæði varðandi almenna dagpeninga erlendis og dagpeninga vegna þjálfunar, náms eða eftirlitsstarfa.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑