Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.4.2024 09:30:46


Ξ Valmynd

7.5  Húsbyggingarskýrsla

Á Húsbyggingarskýrslu RSK 3.03 skal gera grein fyrir byggingu, viðbyggingu, breytingum og endurbótum á fasteignum.
Ekki þarf lengur að sundurliða þann kostnað sem til hefur fallið á árinu.
 
Velja skal byggingarstig í árslok úr fellilista.  Samkvæmt ÍST 51 Byggingastaðli eru 7 skilgreind byggingastig húsa:
    •Byggingarstig 1 - Byggingarleyfi
    •Byggingarstig 2 - Undirstöður
    •Byggingarstig 3 - Burðarvirki fullreist
    •Byggingarstig 4 - Fokheld bygging
    •Byggingarstig 5 - Tilbúin til innréttingar
    •Byggingarstig 6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
    •Byggingarstig 7 - Fullgerð bygging

 
Gera skal grein fyrir eigin vinnu við húsbygginguna á eyðublaðinu svo og gjafavinnu og skiptivinnu. Eigin vinnu við íbúðarhúsnæði til eigin nota skal færa í lið 4 eins og eyðublaðið gerir ráð fyrir.
 
Annars vegar skal tilgreina aukavinnu sem eigandi leggur fram utan venjulegs vinnutíma við byggingu íbúðarhúsnæðis til eigin afnota. Vinna manns við eigin íbúð utan venjulegs vinnutíma er skattfrjáls ef hann uppfyllir eftirgreind tvö atriði:
    a) að hafa unnið fullan vinnutíma við hið eiginlega starf sitt og
    b) skilað eðlilegum árstekjum af því.
 
Hins vegar skal tilgreina eigin vinnu við íbúðarhúsnæði til eigin afnota, unna í venjulegum vinnutíma, svo og alla aðra skattskylda vinnu eiganda við húsbyggingu, svo sem við íbúðarhúsnæði sem ekki er ætlað til eigin afnota, sumarbústaði o.þ.h. Enn fremur verðmæti skiptivinnu í sambandi við eigin húsbyggingu.  Önnur eigin vinna og gjafavinna færist í ótölusettan reit í lið 2.3 á framtali.
 
Fjárhæðir sem hafa skal til viðmiðunar við mat á eigin vinnu árið 2013 eru sem hér segir:
 
Vinna ófaglærðs manns við eigin íbúð kr. 1.270 pr. klst.
Vinna faglærðs manns við eigin íbúð kr. 1.751 pr. klst.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑