Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.4.2024 11:20:21


Ξ Valmynd

7.4  Kaup og sala eigna

Þeir sem kaupa og/eða selja íbúðarhúsnæði eða aðrar eignir sem ekki tengjast atvinnurekstri skulu gera grein fyrir því á eyðublöðum fyrir kaup og sala eigna RSK 3.02.
 
Um er að ræða tvö aðskilin eyðublöð, annað fyrir eignakaup og hitt fyrir sölu eigna. Fyrir framtalsgerðina nú hafa, eftir atvikum, verið áritaðar á þessi eyðublöð upplýsingar frá Þjóðskrá Íslands um fasteignaviðskipti á árinu 2013.
 
Hvað er keypt
Sé um íbúðarkaup að ræða þarf að koma fram hvort húsnæðið sé til eigin nota.
 
Með eigin notum er átt við að húsnæðið sé nýtt til íbúðar af eiganda þess sjálfum. Sérstakar tímabundnar aðstæður, svo sem nám, veikindi eða atvinnuþarfir sem valda því að eigandi íbúðarhúsnæðis getur ekki sjálfur nýtt það til íbúðar, leiðir þó ekki til þess að hann missi rétt til vaxtabóta. Með tímabundnum aðstæðum er átt við að eigandi íbúðarhúsnæðis geri líklegt að hann muni innan ákveðins tíma taka húsnæðið til eigin nota.

 

Nánar:

 

Fara efst á síðuna ⇑