FRAMTALSLEIĐBEININGAR 2024
		2.9.3 Ađrar skattfrjálsar greiđslur
C: reitur 73: Aðrar skattfrjálsar greiðslur
- Dánarbætur tryggingafélaga og dánarbætur sjúkrasjóða stéttarfélaga sem ákveðnar eru og greiddar í einu lagi.
 - Dvalar- og ferðastyrkir til jöfnunar á námskostnaði.
 - Heiðurslaun - heiðursverðlaun. Bókmennta-, tónlistar- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs ásamt norrænu leikskáldaverðlaununum eru undanþegin skattskyldu.
 - Húsnæðisbætur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og sérstakur húsnæðisstuðningur (húsaleigubætur) frá sveitarfélögum.
 - Miskabætur og skaðabætur, greiddar vegna eignatjóns eða sem eingreiðsla vegna varanlegrar örorku.
 - Styrkir. Olíustyrkur, styrkur til tækjakaupa fatlaðra og styrkur úr húsfriðunarsjóði.
 - Samskotafé vegna veikinda eða slysa.
 - Styrkir til foreldra frá sveitarfélögum til að annast barn heima. Hér er átt við svokallaðar heimagreiðslur sem koma í stað niðurgreiðslu á dagvistun.
 - Styrkir til foreldra frá Umhyggju, félagi til stuðnings langveikum börnum.
 - Úttekt úr samlags- og sameignarfélögum.