FRAMTALSLEIĐBEININGAR 2024
		2.3.7 Lífeyrisgreiđslur úr séreignarsjóđum
Hér skal færa hefðbundnar (almennar) greiðslur úr séreignarlífeyrissjóðum á árinu 2023.
Þessar greiðslur ættu í flestum tilvikum að vera áritaðar á framtalið.
NB.  Greiðslur úr "sérstökum" séreignarlífeyrissjóðum skal færa í reit 145.  Greiðslur úr almennum lífeyrissjóðum skal færa í reit 43.  Sérstaka útgreiðslu séreignarsparnaðar skal færa í reit 143.  Ráðstöfun/útborgun úr séreignarsjóði til íbúðarkaupa, umfram það sem skattfrjálst er, skal færa í reit 243.