Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 12.5.2024 04:18:22


Ξ Valmynd

7.21.1  Viðbót við auðlegðarskattsstofn - Útfylling eyðublaðsins

Gerð er grein fyrir endurreikningi hlutabréfaeignar í árslok 2009, til raunvirðis, á eyðublaði RSK 3.23.
Í fyrstu þrjá dálkana skal skrá hlutabréfaeign í árslok 2009 eins og bar að telja hana fram í skattframtali 2010, þ.e. innlend hlutabréf á nafnverði og erlend hlutabréf á kaupverði.
Hjón fá hvort sitt eyðublaðið með helmingi hlutabréfaeignar í árslok 2009, eins og hún var talin fram í framtali 2010.
Á eyðublaðinu á að leiða út raunvirði hlutabréfa. Ef verðmæti bréfanna er umfram nafnverð myndar mismunurinn stofn til auðlegðarskatts. Neikvæður mismunur færist sem 0.
Ef félag er skráð á markaði skal nota markaðsvirði hlutabréfanna eins og það var í árslok 2009. Annars skal reikna raunvirði íslenskra bréfa. Sá stuðull sem nota skal er skattalegt bókfært eigið fé félagsins, deilt með heildarnafnvirði hlutbréfa í félaginu, eins og þessar fjárhæðir eru í skattframtali félagsins 2010. Ætti að vera hægt að nálgast hann hjá viðkomandi félagi. Á vefframtali er stuðullinn forskráður fyrir þau félög sem gert hafa full framtalsskil. Fyrir erlend hlutabréf skal skrá markaðsvirði þeirra í árslok 2009 í dálkinn Raunvirði.

 

Fara efst á síðuna ⇑