Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 11.5.2024 07:46:26


Ξ Valmynd

7.9.2  2500 km reglan

Sé akstur í þágu launagreiðanda ekki umfram 2.500 km á ári er nægilegt að launamaður fylli út eyðublaðið RSK 3.04 að hluta, en ekki er þörf á að sundurliða rekstrarkostnað bifreiðarinnar. Þessi regla nær einungis til þeirra sem aka ekki meira en 2.500 km á ári. Skilyrði er að þeir haldi akstursdagbók eða akstursskýrslu eða hafi gert skriflegan afnotasamning við launagreiðanda þar sem aksturserindum er lýst.

 
Hafi verið greitt fyrir meiri akstur en 2.500 km þarf framteljandi að fylla út liði 3, 4 og 5.
Sé ekki gerð krafa um meiri frádrátt en fyrir 2.500 km akstur þarf að skrá þá kílómetratölu í lið 1 og eru liðir 3, 4 og 5 þá ekki fylltir út.

 

Fara efst á síðuna ⇑