Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 12.5.2024 06:55:39


Ξ Valmynd

7.2  Sjómannaafsláttur

Þeir sem fá greidd laun fyrir sjómannsstörf á íslensku skipi eða skipi sem gert er út af íslensku skipafélagi, eiga rétt á sjómannaafslætti. Sjómannaafslátturinn er reiknaður eftir þeim upplýsingum sem færðar eru í lið 1.5 á fyrstu síðu framtals. Framteljandi sem gerir kröfu um sjómannaafslátt verður undantekningarlaust að fylla út Greinargerð um sjómannaafslátt RSK 3.13, og skila með framtali sínu.  Sjómannaafsláttur árið 2010 er 987 kr. á dag.
 
Lögskráningardagar
Hjá þeim sem stundað hafa sjómannsstörf á skipum sem skylt er að lögskrá á hafa lögskráningardagar, samkvæmt skráningu Siglingastofnunar, verið áritaðir á eyðublaðið RSK 3.13 ásamt kennitölu útgerðar og nafni og númeri skips. Þessari tölu á ekki að breyta nema því aðeins að bæta þurfi við dögum sem sjómaður gat ekki stundað vinnu vegna veikinda eða slysa, en fengið greidda samkvæmt kjarasamningi.
Sjómenn á skipum sem skráð eru erlendis, en gerð út af íslenskum skipafélögum, þurfa sjálfir að færa inn upplýsingar um lögskráningardaga.
 
Almennir vinnudagar
Á fiskiskipum sem ekki er skylt að lögskrá á skal miða við almenna vinnudaga á úthaldstímabili í stað lögskráningardaga. Réttur til sjómannaafsláttar er bundinn því skilyrði að tekjur af sjómannsstörfum nemi a.m.k. 30% af tekjuskattsstofni, þó ekki hjá beitningarmönnum.
Hjá hlutaráðnum beitningarmönnum skal miða við þá daga sem þeir eru ráðnir til slíkra starfa samkvæmt samningi um hlutaskipti.
 
Ráðningartími
Í dálk A skal færa fjölda daga sem sjómaður er ráðinn hjá útgerð til sjómannsstarfa. Til ráðningartímans skal telja orlof og aðra ónýtta frídaga sem gerðir eru upp við lok ráðningar.
 
Dagar til útreiknings sjómannaafsláttar
Lögskráningardagar og/eða almennir vinnudagar í dálki B á greinargerðinni reiknast til sjómannaafsláttar með margfeldinu 1,49. Ekki er þó hægt að fá sjómannaafslátt fyrir fleiri daga en ráðningartími hjá útgerð segir til um og færðir eru í dálk A.
 
Sjómannslaun
Í dálkinn sjómannslaun færa launamenn þau laun sem þeir hafa fengið greidd fyrir sjómannsstörf. Þeir sem eru með eigin útgerð og stunda sjómennsku á eigin fari færa sem sjómannslaun reiknað endurgjald og tekjur af atvinnurekstri samanlagt.

 

Fara efst á síðuna ⇑