Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.4.2024 11:42:33


Ξ Valmynd

5  Skuldir

Gera skal grein fyrir öllum skuldum í árslok, þ.m.t. skuldum við greiðslukortafyrirtæki.
Þeir sem greiða vaxtagjöld af lánum vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota eiga rétt á vaxtabótum og sama á við um þá sem keypt hafa eignarhlut í almennri kaupleiguíbúð skv. 76. gr. laga nr. 97/1993. Rétturinn stofnast á því ári þegar íbúð eða eignarhluti er keyptur eða bygging er hafin. Vaxtabætur ákvarðast samkvæmt upplýsingum á framtali og til að fá vaxtabætur þarf að gera sundurliðaða grein fyrir lánum og vaxtagjöldum.
Upplýsingar um lán frá Íbúðalánasjóði og vaxtagjöld vegna kaupleiguíbúða koma fram á sundurliðunarblaði með framtali.
 
Lánaupplýsingar
Lánaupplýsingar frá bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum eru áritaðar á framtalið eða inn á sundurliðunarblaðið, ef ekki liggur ljóst fyrir hvort lánin eiga að færast í kafla 5.2 eða 5.5. Framteljandi þarf þá að ákveða hvar þær eru færðar á framtal, sbr. umfjöllun um lánaupplýsingar á sundurliðunarblaði.
 
Skuldir á sundurliðunarblaði sem flytja þarf á framtal
Á sundurliðunarblaðið með framtalinu eru m.a. færðar lánaupplýsingar frá lífeyrissjóðum og Íbúðalánasjóði. Þegar ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort þessi lán veita rétt til vaxtabóta eru þau ekki árituð á framtalið og þarf framteljandi sjálfur að færa þau á viðeigandi stað (þ.e. lið 5.2 á framtali) ef þau eru vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota, annars í lið 5.5, eða á viðeigandi rekstrarblað ef þau tengjast rekstri. Á sundurliðunarblaðinu eru einnig lánaupplýsingar vegna ökutækja. Þegar ekki er ljóst hvort lánin séu vegna ökutækis sem notað er í rekstri eru lánin þó ekki árituð á framtalið heldur þarf framteljandi sjálfur að færa þau á viðeigandi stað.

Nánar:

 

Fara efst á síðuna ⇑