Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 12.5.2024 15:18:11


Ξ Valmynd

5.3  Eftirstöðvar skulda á söludegi

Þeir sem selt hafa íbúðarhúsnæði á árinu og ekki keypt eða hafið byggingu annars íbúðarhúsnæðis í stað hins selda fyrir árslok skulu færa eftirstöðvar skulda eins og þær voru á söludegi í dálk fyrir eftirstöðvar skulda í kafla 5.2. Síðan þarf að setja hak í viðeigandi reit í kafla 5.3 og flyst þá fjárhæð eftirstöðva sjálfkrafa úr reit 45 í kafla 5.2 yfir í reit 41 í kafla 5.3.
 
Skuldbreyting vegna vanskila - frysting láns - frestun
Sem stofn til vaxtabóta teljast gjaldfallnar verðbætur og vextir þó greiðsla sé í vanskilum um áramót. Skal þá fylla út viðeigandi reiti eins og um greiðslu sé að ræða. Sé samið um breytingu á skilmálum láns sem er í vanskilum, með því að breyta vanskilunum í nýtt lán, telst sá hluti vanskilanna, sem eru vextir og verðbætur, til gjaldfallinna vaxtagjalda þegar þeim er bætt við höfuðstól lánsins, ef það er á sama ári og þau gjaldféllu. Sama á við þegar lán er fryst eða greiðslum frestað ef það er gert með þeim skilmálum að hækka höfuðstól lánsins árlega sem nemur frestuðum greiðslum. Sá hluti frestaðra greiðslna sem eru vextir og verðbætur teljast sem vaxtagjöld þegar þeim er bætt við höfuðstól lánsins. 
 
Fyrirframgreiðsla vaxtabóta
Þeir sem fengu fyrirframgreiddar vaxtabætur vegna vaxtagjalda á árinu 2010 þurfa eftir sem áður að gera grein fyrir vaxtagjöldum vegna íbúðarkaupa á framtali sínu. Í fyrirframgreiðslunni er miðað við greidd vaxtagjöld af fasteignaveðlánum, en á framtal skal færa öll vaxtagjöld sem gjaldféllu á árinu 2010, einnig þau sem voru í vanskilum. Hafi verið tekin önnur lán vegna öflunar íbúðarhúsnæðis en þau sem notuð voru við útreikning fyrirframgreiðslu, skal gera grein fyrir vaxtagjöldum af þeim á framtali.

 

Fara efst á síðuna ⇑