Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 29.3.2024 06:40:39


Ξ Valmynd

2.6.5  Frádráttur á móti öđrum styrkjum og starfstengdum greiđslum

Reitur 157:
Frádráttur frá öðrum styrkjum og starfstengdum greiðslum. Ef gerð er krafa um frádrátt vegna kostnaðar á móti styrkjum til sérstakra verkefna eða starfstengdum greiðslum, án þess að um sjálfstæðan atvinnurekstur sé að ræða, færist sá frádráttur í þennan reit. Frádrátturinn getur aldrei orðið hærri en móttekin greiðsla.

Kostnaður á móti tekjufærðum ættleiðingarstyrk frá Vinnumálastofnun færist hér. Einnig frádráttur á móti samgöngugreiðslum, sem getur mestur orðið 96.000 kr. Sama á við um kostnað vegna líkamsræktar sem getur að hámarki orðið 60.000 kr.

Gera skal sundurliðaða grein fyrir kostnaðinum á sérstöku yfirliti sem fylgja skal framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali sem opnast þegar smellt er á Færa frádrátt). Heildarkostnaður skv. yfirlitinu færist síðan í reit 157. Frádráttur heimilast ekki á móti styrkjum vegna persónulegra útgjalda, s.s. vegna gleraugnakaupa, heyrnartækjakaupa, glasafrjóvgunar, krabbameinsskoðunar, ættleiðinga, tannviðgerða, sjúkraþjálfunar, sálfræðiþjónustu, dvalar á heilsustofnunum og útfarar.

Ef áritaðar eru tilfallandi verktakagreiðslur í reit 196 í kafla 2.3 er ekki hægt að færa frádrátt á móti þeim í reit 157.  Þá þarf að flytja fjárhæðina (tekjurnar) inn á rekstrarblað (RSK 4.10, 4.11, 4.08 eða 1.04) og færa frádráttinn innan þess blaðs.

Frádráttur vegna umönnunar:

Smelltu á kaflaheiti hér að neðan til að fá nánari upplýsingar um frádrátt á móti greiðslum vegna umönnunar.

7.10.3  Fósturbörn

7.10.4  Stuðningsfjölskyldur

7.10.5  Vistun aldraðra eða öryrkja

 

Fara efst á síđuna ⇑