1.1.2 Slysatrygging
Áritun á framtal
Framvegis verður merking vegna slysatryggingar sótt á framtal fyrra árs, eða í stillingar á þjónustusíðu ef framteljandi hefur breytt ákvörðun sinni eftir skil framtals.
Merkingunni er hægt að breyta á framtalinu og einnig í stillingum á þjónustusíðu eftir skil framtals, allt fram til 1. maí.
Slysatrygging við heimilisstörf
Með því að merkja í þennan reit tryggir framteljandi sér rétt til slysabóta almannatrygginga vegna slysa við heimilisstörf, en það er sami réttur og vegna vinnuslysa. Slysabætur almannatrygginga eru:
- slysadagpeningar,
- greiðsla sjúkrakostnaðar eftir ákveðnum reglum,
- örorkubætur ef slysið leiðir til örorku og
- dánarbætur ef slysið veldur dauða innan tveggja ára frá því það varð.
Iðgjaldið er innheimt ásamt opinberum gjöldum, en það er 550 krónur árið 2018. Tryggingin gildir frá 1. júní á framtalsári til 31. maí næsta árs á eftir. Slysatryggingin gildir því aðeins að framtali sé skilað á réttum tíma.
Nánari upplýsingar um þessa tryggingu er að finna á vef Sjúkratrygginga íslands www.sjukra.is