Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 25.4.2024 16:14:52


Ξ Valmynd

4.11  Geta allir nýtt sér þessa ráðstöfun á séreignarsparnaði?

Almenna reglan er að allir sem hafa gert samning um að greiða viðbótarlífeyrissparnað geta nýtt sér að taka út vegna kaupa/byggingar á sinni fyrstu íbúð eða ráðstafa greiðslum inn á lán sem tryggt er með veði í íbúðinni. Það kann þó að vera að einhverjir tilteknir sjóðir taki ekki þátt í þessu.

Heimildin gildir í samfellt tíu ár frá þeim tíma sem umsækjandi velur sjálfur að hefja ráðstöfun, annað hvort með úttekt eða greiðslu inn á veðlán, eða hvoru tveggja.    

 

Fara efst á síðuna ⇑