Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 18.5.2024 10:52:52


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 4.919.833 kr. reiknast 16,78% tekjuskattur, af næstu 8.892.310 kr. reiknast 23,28% tekjuskattur og af stofni umfram 13.812.143 kr. reiknast 31,58% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,67% á tekjuárinu 2023.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

14.500.000

 
16,78% tekjuskattur af 4.919.833 kr.             +  825.548  
23,28% tekjuskattur af 8.892.310 kr.           + 2.070.130  
31,58% tekjuskattur af 687.857 kr.                  +

217.225

 
Persónuafsláttur 2)                                        -

715.981

3)

Tekjuskattur    =

2.396.922

4)
     
Útsvar - 14,67% af stofni 5)                         +

2.127.150

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

6)

Útsvar til innheimtu   = 

2.127.150

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2023 er kr. 715.981.
  3. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
  4. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  5. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  6. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑