Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 26.4.2024 03:20:49


Ξ Valmynd

2.6.8  Frádráttur vegna gjafa/framlaga til skráđra almannaheillafélaga

Einstaklingur getur fengið skattfrádrátt (lækkun á tekjuskattsskattstofni) allt að 350 þús. krónum á ári, vegna gjafa og framlaga til félaga sem eru skráð á almannaheillaskrá Skattsins.

Móttakendur gjafa og framlaga, sem skráðir eru á almannaheillaskrá, þurfa að gefa út kvittun fyrir móttöku þar sem m.a. kemur fram nafn og kennitala gefanda og fjárhæð framlags. Að ári loknu þarf móttakandi að skila upplýsingum um móttekin framlög ársins til Skattsins og á grundvelli þeirra gagnaskila verður frádráttur áritaður á framtöl gefenda (reitur 155 í kafla 2.6 á tekjusíðu framtals).

Til þess að einstaklingur fái frádrátt þurfa gjafir/framlög hans á árinu að vera a.m.k. 10 þúsund krónur. Ef heildarframlög eru undir 10.000 kr. á árinu færast 0 kr. í reit 155.

Hámarks frádráttur er 350 þúsund krónur. Ef heildarframlög eru yfir 350.000 kr. á árinu færast aðeins 350.000 kr. í reit 155.

Frádráttur þessi er ekki millifæranlegur hjá hjónum/sambúðarfólki.

 

Fara efst á síđuna ⇑