Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.3.2024 08:03:02


Ξ Valmynd

1.8.4  Bráðabirgðaútreikningur

Bráðabirgðaútreikningur
Unnt er að fá útreikning gjalda á vefnum. Meðan á framtalsgerð stendur er þetta gert með því að smella fyrst á "Villuprófun" og velja síðan útreikning. Einnig er boðið upp á bráðabirgðaútreikning á þjónustusíðunni eftir að framtali hefur verið skilað, allt fram til þess tíma þegar álagning ársins liggur fyrir.
 
Með niðurstöðunni fylgir uppgjör sem sýnir áætlaða greiðslustöðu framteljanda 1. júní. Þetta er þó bráðabirgðaútreikningur, byggður á upplýsingum sem liggja fyrir á þeim tíma. Í texta sem fylgir niðurstöðum eru tiltekin þau atriði sem valdið geta skekkjum, s.s. fyrirframgreiðsla vaxtabóta og tekjur erlendis.
Í bráðabirgðaútreikningi koma ekki fram þau gjöld sem tengjast atvinnurekstri framteljanda, þ.e. tryggingagjald og fjársýsluskattur.
Vakin er athygli á því að í bráðabirgðaútreikningi er notast við upplýsingar um staðgreiðslu sem fram koma í kafla 2.10 á framtalinu, en við sjálfa álagninguna eru notaðar upplýsingar um greidda staðgreiðslu skv. staðgreiðslukerfi skattyfirvalda!
 
Þeir sem ekki geta fengið útreikning
Ekki geta allir framteljendur fengið útreikning gjalda á vefnum. Það á fyrst og fremst við um þá sem ekki áttu lögheimili á Íslandi allt árið 2020 og þá einhleypinga sem létust á árinu 2020.
 
Einstaklingar í óvígðri sambúð sem telja fram hvor í sínu lagi (fjölskyldumerking 7) fá ekki rétta niðurstöðu um vaxtabætur og barnabætur og fá því ekki bráðabirgðaútreikning. Skýringar á sérstöðu þeirra koma á skjáinn þegar framtalið er opnað í fyrsta sinn og er þeim bent á að kynna sér þær upplýsingar vandlega.
 
Í sumum tilfellum, þegar sótt er um samsköttun á vefnum, verður ekki hægt að fá útreikning.
Þeir sem hafa tekjur erlendis, en áttu lögheimili á Íslandi allt árið, fá niðurstöðu þar sem ekki hefur verið tekið tillit til lækkunar vegna skattgreiðslna erlendis, og verða því að taka niðurstöðunni með fyrirvara.
 
Þeir sem ekki geta fengið útreikning eru því í stuttu máli þessir:
  • Framteljendur sem ekki áttu lögheimili á Íslandi allt árið.
  • Einstaklingar í óvígðri sambúð sem telja fram hvort í sínu lagi (7-merktir).
  • Framteljendur sem ekki voru í sambúð samkvæmt áritun á framtal en sækja um samsköttun í kafla 1.2 á forsíðu framtalsins.

 

Fara efst á síðuna ⇑