Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 00:36:47


Ξ Valmynd

3.2  Innstæður í erlendum bönkum

Hér skal færa innstæður í erlendum bönkum. Þær færast til eignar í íslenskum krónum á kaupgengi í árslok, í reit 321. Vaxtatekjur af þeim færast, þegar þær eru lausar til ráðstöfunar, í reit 322. Vaxtatekjur sem falla til yfir árið má færa á meðalkaupgengi ársins.
 
Gengistafla vegna ársins 2020
Gjaldmiðill

Meðalkaupgengi ársins

(fyrir vaxtatekjur)

Kaupgengi í árslok

(fyrir innstæður)

USD  Bandaríkjadalur 135,27 127,06
GBP  Sterlingspund 173,59 172,38
EUR  Evra 154,52 155,59
DKK  Dönsk króna 20,731 20,909
NOK  Norsk króna 14,421 14,861
SEK  Sænsk króna 14,754 15,496
CHF  Svissneskur franki 144,33 143,91
JPY  Japanskt jen 1,2681 1,2298
CAD  Kanadadalur 100,95 99,74
PLN  Pólskt slot 34,769 34,093

 

Upplýsingar um gengi annarra gjaldmiðla má fá á heimasíðu Seðlabankans, sedlabanki.is

 

 

Fara efst á síðuna ⇑