Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 25.4.2024 21:01:18


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 10.724.553 kr. reiknast 22,5% tekjuskattur og af stofni umfram 10.724.553 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,44% á tekjuárinu 2018.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

11.500.000

 
22,5% tekjuskattur af 10.724.553 kr.             +  2.413.024  
31,8% tekjuskattur af 775.447 kr.                  +

246.592

 
Persónuafsláttur 2)                                        -

646.739

3)

Tekjuskattur    =

2.012.877

4)
     
Útsvar - 14,44% af stofni 5)                         +

1.660.600

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

6)

Útsvar til innheimtu   = 

1.660.600

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2018 er kr. 646.739.
  3. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
  4. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  5. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  6. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑