FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2017
7.27 Eyðublað RSK 4.25 (CFC félög) í rafrænum skilum
Í rafrænum framtalsskilum hefur eldri útgáfum eyðublaða RSK 4.24 og RSK 4.25 verið slegið saman í eina útgáfu (eitt eyðublað), undir nafninu RSK 4.25.Fyrstu þrír kaflar blaðsins varða atriði sem áður voru á eyðublaði RSK 4.24 og snúa að atriðum er varða hið erlenda CFC-félag sjálft.
Kafli 4 varðar atriði sem áður voru á eyðublaði RSK 4.25 og snúa að hlut eiganda (framteljanda) í tekjum og eignum CFC-félagsins.
Skýrsla lögaðilans skal ná til allrar starfseminnar viðkomandi tekjuár. Til að fá úthlutað kennitölu fyrir CFC-félag þarf að snúa sér til fyrirtækjaskrár RSK og skila inn umsóknareyðublaði RSK 17.90. Nota má kennitöluna 999999-9999 ef félagið hefur ekki enn fengið íslenska kennitölu þegar þessu eyðublaði er skilað, en þá skal sækja um íslenska kennitölu hið allra fyrsta.
Skila ber ársreikningi lögaðilans með skýrslunni.