Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 07:04:55


Ξ Valmynd

7.26  Greinargerð um aflaverðmæti og rekstrarkostnað fiskiskipa - RSK 4.29

Eyðublað RSK 4.29 er eingöngu fylgiskjal með skattframtali hjá lögaðila eða einstaklingi í útgerð.
Hér er um að ræða upplýsingaöflun skv. 10. gr. laga nr. 74/2012 um veiðigjald.
Fylla skal út upplýsingar um aflaverðmæti og útgerðarkostnað, sundurliðað niður á einstakt fiskiskip/bát.
Ath. Ef um er að ræða áritað skip eða bát, sem er ekki á vegum framteljanda, getur þurft að færa 1 kr. í tekjur og gjöld á blaðinu og skila því þannig.  Þá skal gerð grein fyrir ástæðum slíkrar útfyllingar í athugasemdasvæðinu neðst á blaðinu!

Til að hefja útfyllingu er smellt á >> táknið framan við nafn viðkomandi fiskiskips og skráningarmyndin sem þá birtist fyllt út.

Skýringar við einstaka reiti

Nafn skips
Hér skal skrá heiti og skráningarnúmer (einkennisstafir og númer) skips eða báts.
Kemur forskráð í rafrænu framtali.

Skipaskrárnúmer
Hér skal skrá skipaskrárnúmer skips eða báts. Kemur forskráð í rafrænu framtali.

Aflaverðmæti
Söluverð landaðs afla skipsins.

2.1 Laun af aflahlutum
Hlutur áhafnar af aflaverðmæti landaðs afla skipsins.

2.2 Önnur laun
Önnur laun áhafnar skipsins sem tengist úthaldi þess.

Launatengd gjöld vegna 2.1 og 2.2
Hér getur t.d. verið um að ræða tryggingagjald og mótframlag í lífeyrissjóð.

Orkukostnaður (Eldsneyti)
Eldsneytiskostnaður vegna úthalds skipsins.

Viðhaldskostnaður
Viðhaldskostnaður vegna úthalds skipsins.

Veiðarfærakostnaður
Veiðafærakostnaður vegna úthalds skipsins.

Frystikostnaður
Frystikostnaður vegna landaðs afla skipsins.

Umbúðakostnaður
Umbúðakostnaður vegna landaðs afla skipsins.

Löndunarkostnaður
Löndunarkostnaður vegna landaðs afla skipsins.

Flutningskostnaður
Flutningskostnaður vegna landaðs afla skipsins.

 

Fara efst á síðuna ⇑