FRAMTALSLEIÐBEININGAR 2017
8.3.2 Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur
Skattur á tekjur samkvæmt 3. kafla framtals er 20% á árinu 2016. Af þeim persónuafslætti sem ekki nýtist vegna tekjuskatts eða til greiðslu útsvars ganga 20/37 til greiðslu skatts á fjármagnstekjur.
Einungis 50% leigutekna af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda mynda skattstofn og frítekjumark á vaxtatekjur (í köflum 3.1 til 3.4) er 125.000 kr. hjá einhleypingi og 250.000 kr. hjá hjónum/samsköttuðum.