Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 24.4.2024 23:12:19


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 4.032.420 kr. reiknast 22,68% tekjuskattur, af næstu 6.011.460 kr. 23,90% og af stofni umfram 10.043.880 kr. 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,45% á tekjuárinu 2016.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

4.500.000

 
22,68% tekjuskattur af 4.032.420                 +  914.553  
23,9% tekjuskattur af 467.580                    +

 111.752

 
Sjómannaafsláttur 2)                                     -

0

 
Persónuafsláttur 3)                                        -

623.042

4)

Tekjuskattur    =

403.623

5)
     
Útsvar - 14,45% af stofni 6)                         +

650.250

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars         -

0

7)

Útsvar til innheimtu   = 

650.250

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Sjómannaafsláttur féll alveg niður á tekjuárinu 2014.
  3. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2016 er kr. 623.042.
  4. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 7).
  5. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  6. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  7. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑