Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 6.5.2024 04:20:10


Ξ Valmynd

7.7  Sala/innlausn verðbréfa

Þeir sem seldu eða innleystu verðbréf á árinu 2011 skulu gera grein fyrir því á eyðublaðinu Sala/innlausn verðbréfa RSK 3.15. Fylla þarf út eyðublaðið eins og form þess segir til um; upplýsingar um kaupanda og seljanda, hvaða bréf er verið að selja, kaupdag, söludag, stofnverð og sölu- eða innlausnarverð.
 
 
Vextir, verðbætur og afföll, svo og gengishagnaður af kröfum í erlendri mynt og gengishækkun hlutdeildarskírteina mynda stofn til fjármagnstekjuskatts. Í skýringum hér að neðan er stofnverð verðbréfa skilgreint og útskýrt nánar hvernig það er fundið út.  Í kafla 8.1.5. er tafla yfir verðmæti markaðsverðbréfa 1. janúar 1997 sem nota skal til útreiknings á vaxtatekjum af verðbréfum sem voru í eigu framteljanda fyrir 1. janúar 1997.
  • Ef selt/innleyst er verðbréf sem framteljandi eignaðist fyrir 1. janúar 1997 verður að finna stofnverð (upphafsverð) bréfsins 1. janúar 1997 þar sem vaxtatekjur sem til féllu fyrir þann tíma eru ekki skattlagðar. Vaxtatekjur ársins eru fundnar með því að draga stofnverðið frá söluverðinu. Söluþóknanir má draga frá söluverði.
  • Ef selt/innleyst er verðbréf sem framteljandi eignaðist eftir 1. janúar 1997 eru vaxtatekjur fundnar með því að draga kaupverðið frá söluverðinu. Söluþóknanir má draga frá söluverði.
 
Hafi seljandi verið búinn að fá afborganir af bréfinu á árinu 2011 skal færa þær vaxtatekjur sem þá fengust greiddar í reit 1 á eyðublaðinu.
 
 
Dæmi:
Árni keypti skuldabréf af Birni Björnssyni á kr. 682.000 þann 1. febrúar 2011. Hann seldi Verðbréfasölunni h.f. skuldabréfið á kr. 725.000 þann 1. júní 2011 og greiddi 500 krónur í söluþóknun.
 

Söluverðið að frádreginni söluþóknun, eða kr. 724.500, færist í reit 2 og kaupverðið, kr. 682.000, í reit 3. Mismunurinn, kr. 42.500, eru vaxtatekjur Árna af bréfinu og færast í reit 5. Verðbréfasalan h.f. hélt eftir 20% af vaxtatekjunum vegna staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur, eða kr. 8.500 og færist sú fjárhæð í reit 4.
 

Reitur 1 - Áður fengnir vextir á árinu

Hafi afborgunarbréf verið selt skal færa í þennan reit þær vaxtatekjur sem innheimtar hafa verið á gjalddögum fyrr á árinu. Sjá einnig um Stofnverð seldra afborgunarbréfa.

Reitur 2 - Söluverð

Með söluverði er átt við sölu- eða innlausnarandvirði bréfsins að frádregnum sölukostnaði og/eða umsýsluþóknun vegna sölunnar.

Reitur 3 - Stofnverð

Þegar reiknaðar eru út vaxtatekjur af seldum verðbréfum þarf að færa stofnverð í reit 3. Stofnverð getur verið tvenns konar, eftir því hvers konar bréf er verið að selja eða innleysa. Ef selt er bréf sem framteljandi eignaðist á árinu 1997 eða síðar er stofnverðið kaupverð bréfsins. Ef selt er bréf sem framteljandi eignaðist 1996 eða fyrr er stofnverðið upphafsverð.

Kaupverð.Með kaupverði er átt við kaupverð bréfsins að viðbættri umsýsluþóknun vegna kaupanna ef um hana er að ræða. Kaupverðið er stofnverð bréfa sem framteljandi hefur eignast á árinu 1997 eða síðar.

Kaupverð skuldaviðurkenninga, sem eru hluti af greiðslu söluandvirðis samkvæmt kaupsamningi, skal skráð samkvæmt ákvæðum í kaupsamningnum sem liggja að baki viðskiptunum.

Upphafsverð.Með upphafsverði er átt við verðgildi sem notað er til útreiknings á vaxtatekjum af bréfum sem framteljandi hefur eignast 1996 eða fyrr. Stuðlar til útreiknings á upphafsverði markaðsverðbréfa er að finna hér á eftir. Annars vegar gengi hlutdeildarskírteina 31.12.1996 og hins vegar stuðlar til útreiknings á upphafsverði annarra markaðsverðbréfa.

Stofnverð seldra afborgunarbréfa.Ef afborgunarbréf er selt fyrir lok lánstímans skal færa sem stofnverð eftirstöðvar eins og þær voru, með verðbótum, eftir síðustu­ afborgun á árinu. Vaxtatekjur sem þegar hafa verið innheimtar með afborgunum fyrr á árinu færast í reit 1, Áður fengnir vextir á árinu.

Reitur 4 - Staðgreiðsla af vaxtatekjum ársins

Hafi banki, sparisjóður, verðbréfafyrirtæki eða annar skilaskyldur aðili annast sölu eða innlausn verðbréfsins, skal færa hér þá fjárhæð sem hann hélt eftir vegna staðgreiðslu skatts á vaxtatekjur.

Reitur 5 - Vaxtatekjur

Sem vaxtatekjur færist mismunurinn á söluverði (2) og stofnverði (3). Af seldum afborgunabréfum bætast við áður fengnir vextir á árinu (1).

 

 

Fara efst á síðuna ⇑