Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 6.5.2024 05:59:33


Ξ Valmynd

7.23  Skýrsla eiganda í lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.25

Leiðbeiningar með skýrslu eiganda í lögaðila á lágskattasvæði (CFC) - RSK 4.25

 
Gera skal grein fyrir eignarhluta, atkvæðisrétti og mótteknum arði vegna beinnar eignarhlutdeildar. Ennfremur skal gera grein fyrir eignarhluta og atkvæðisrétti vegna óbeins eignarhalds. Sé um sérstaklega flókið eignarhald að ræða skal gerð grein fyrir því á sérstöku fylgiskjali.
 
Eingöngu ber að gera grein fyrir óbeinni eignaraðild þegar hún er í gegnum erlent félag. Gert er ráð fyrir því að skýrslan sé unnin út frá fyrirliggjandi upplýsingum á eyðublaði RSK 4.24.
 
Útreikningur á hagnaði/tapi
Hér skal færa hlutdeild eiganda í rekstrarafkomu lögaðilans, sbr. reit 413 á eyðublaði RSK 4.24. Þegar fundin er hlutdeild í hagnaðinum/tapinu skal byggja á eignarhlutdeild, en ekki atkvæðisrétti eða stýrðum hluta, sbr. reiti 401 og 407. Gera skal viðeigandi skattalegar leiðréttingar með hliðsjón af réttarformi eigandans (s.s. hf., sf., einstaklingar). Samtala í reit 422 færist í viðeigandi reit á rekstrarskýrslu eiganda. Hlutdeild í hagnaði færist í reit 4399 á skattframtali rekstraraðila RSK 1.04 að því marki sem þær tekjur hafa ekki þegar verið bókfærðar. Gildir það bæði um einstaklinga og félög.
 
Ef tap er á rekstri CFC-félagsins, sem er frádráttarbært skv. lokamálslið 5. mgr. 57. gr. a laga nr. 90/2003, má eigandi færa hlutdeild sína í því tapi á móti þeim hagnaði CFC-félagsins sem kemur til skattlagningar hjá eiganda síðar.
 
Hrein eign til færslu á skattframtal
Eiganda ber að færa hlutdeild sína í eigin fé lögaðilans til eignar á skattframtali sínu. Hlutdeildin reiknast út frá samtölu í reit 416 eða 417 á eyðublaði RSK 4.24 eftir því sem við á. Hafi hlutdeild lögaðila í hreinni eign CFC félags ekki verið færð á skattframtal á raunvirði/markaðsvirði þarf að skrá það í töfluna „Hlutabréfaeign í erlendum félögum“. Á skattframtali einstaklings skal færa raunvirðið á eyðublað RSK 3.23.

 

Fara efst á síðuna ⇑