Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.4.2024 12:20:45


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 4.188.211 kr. reiknast 17,0% tekjuskattur, af næstu 7.569.948 kr. reiknast 23,50% tekjuskattur og af stofni umfram 11.758.159 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,45% á tekjuárinu 2021.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

12.500.000

 
17,0% tekjuskattur af 4.188.211 kr.             +  711.996  
23,50% tekjuskattur af 7.569.948 kr.           + 1.778.938  
31,8% tekjuskattur af 741.841 kr.                  +

235.905

 
Persónuafsláttur 2)                                        -

609.509

3)

Tekjuskattur    =

2.117.330

4)
     
Útsvar - 14,45% af stofni 5)                         +

1.806.250

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

6)

Útsvar til innheimtu   = 

1.806.250

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2021 er kr. 609.509.
  3. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
  4. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  5. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  6. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑