Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 20.4.2024 16:10:36


Ξ Valmynd

2.2.3  Bifreiđahlunnindi

Færa skal bifreiðahlunnindi í reit 134. Umráð starfsmanns af fólksbifreið eða öðrum bifreiðum sem hægt er að hafa sambærileg not af, sem launagreiðandi hans lætur honum í té til fullra umráða, skulu metin starfsmanni til tekna sem hér segir (m.v. heilt ár):
 
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2015, 2016 eða 2017
26%
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2012, 2013 eða 2014 21%
Bifreið sem tekin var í notkun á árunum 2011 eða fyrr 18%
 
 
Ekki skiptir máli hver upphaflegur eigandi bifreiðarinnar var. Bifreið sem flutt var inn notuð telst hafa verið tekin til notkunar á því ári sem hún var framleidd. Mánaðarleg hlunnindi teljast 1/12 af hlunnindum reiknuðum eins og framan greinir fyrir hvern byrjaðan mánuð og skal við það miðað ef umráðin vara hluta úr ári.

Greiði launamaður rekstrarkostnað bifreiðar sem hann hefur umráð yfir skulu hlunnindi lækkuð um 6% af verði bifreiðarinnar. Sjá nánari upplýsingar í Bifreiðaskrá 2016 RSK 6.03.

Í stað framangreindra aðferða við ákvörðun á verði bifreiðar og það hlutfall af verði sem þar er kveðið á um er heimilt að miða útreikninga á bifreiðahlunnindum við 28% af upphaflegu kaupverði bifreiðarinnar samkvæmt eignaskrá launagreiðanda. Sé þessi aðferð notuð er heimilt að færa verð bifreiðarinnar niður um 10% á ári, í fyrsta skipti á árinu eftir kaupár en mest þannig að viðmið­unar­verð til útreiknings á bifreiðahlunnindum verði aldrei lægra en 50% af kaupverði hennar. Heimild til að nýta þessa aðferð við útreikningana tekur til bifreiða sem keyptar eru á árinu 2014 og síðar.

 

 

Fara efst á síđuna ⇑