Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 22.12.2024 07:07:46


Ξ Valmynd

1.7.1  Skilafrestir

Framtalsgerð 2017 verður með svipuðum hætti og síðustu ár. Skilafrestur er til miðvikudagsins 15. mars. Unnt er að sækja um aukinn frest til skila á þjónustuvef ríkisskattstjóra, skattur.is, og getur hann lengstur orðið til 20. mars. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Framtölum dánarbúa manna, er létust á árinu 2015 eða fyrr og var ekki lokið skiptum á í árslok 2015, skal skila í framtalsfresti lögaðila, sem er til 31. maí. Fagframteljendur hafa rýmri tímamörk en einstaklingar og lögaðilar.
 
Heimilt er að beita álagi á skattstofna ef framtali er ekki skilað á réttum tíma og eins ef framteljandi gefur rangar upplýsingar á framtali eða í fylgiskjölum.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑