Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 19.3.2024 06:15:48


Ξ Valmynd

1.7.2  Framtalsskylda eigna

Þrátt fyrir að almennur eignarskattur hafi verið afnuminn er full framtalsskylda á eignum og skuldum og gildir það jafnt um þá sem eru búsettir erlendis og þá sem búa hér á landi. Ástæður framtalsskyldu eru m.a. þær að eignir og skuldir hafa áhrif á vaxtabætur og hagnaður af sölu ýmissa eigna er skattskyldur og reiknast frá stofnverði þeirra. Upplýsingar um eignir og skuldir hafa og almennt upplýsingagildi við mat á framtölum.
 

 

Fara efst á síðuna ⇑