Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 5.5.2024 05:31:03


Ξ Valmynd

1.8.4  Bráðabirgðaútreikningur

Bráðabirgðaútreikningur
Unnt er að fá útreikning gjalda á vefnum. Meðan á framtalsgerð stendur er þetta gert með því að smella fyrst á "Villuprófun" og velja síðan útreikning. Einnig er boðið upp á útreikning eftir að framtali hefur verið skilað.
 
Með niðurstöðunni fylgir uppgjör sem sýnir áætlaða greiðslustöðu framteljanda 1. ágúst. Þetta er þó bráðabirgðaútreikningur, byggður á upplýsingum sem liggja fyrir á þeim tíma. Í texta sem fylgir niðurstöðum eru tiltekin þau atriði sem valdið geta skekkjum, s.s. fyrirframgreiðsla vaxtabóta og tekjur erlendis.
 
 
 
Þeir sem ekki geta fengið útreikning
Ekki geta allir framteljendur fengið útreikning gjalda á vefnum. Það á fyrst og fremst við um þá sem ekki áttu lögheimili á Íslandi allt árið 2011.
 
Maður og kona í óvígðri sambúð sem telja fram hvort í sínu lagi (fjölskyldumerking 7) fá ekki rétta niðurstöðu um vaxtabætur og barnabætur. Skýringar á sérstöðu þeirra koma á skjáinn þegar framtalið er opnað í fyrsta sinn og er þeim bent á að kynna sér þær upplýsingar vandlega.
 
Í sumum tilfellum, þegar sótt er um samsköttun á vefnum, verður ekki hægt að fá útreikning. Þeir sem hafa tekjur erlendis, en áttu lögheimili á Íslandi allt árið, fá niðurstöðu þar sem ekki hefur verið tekið tillit til lækkunar vegna skattgreiðslna erlendis.

 

Fara efst á síðuna ⇑