Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 5.5.2024 04:26:30


Ξ Valmynd

1.7.1  Skilafrestir

Framtalsgerð 2012 verður með svipuðum hætti og síðustu ár. Skilafrestur er til fimmtudagsins 22. mars. Unnt er að sækja um aukinn frest til skila á þjónustuvef ríkisskattstjóra, skattur.is, og getur hann lengstur orðið til 27. mars. Framtal barns skal fylgja framtali framfæranda. Framtölum dánarbúa manna, er létust á árinu 2010 eða fyrr og var ekki lokið skiptum á í árslok 2010, skal skila í framtalsfresti lögaðila, sem er til 31. maí. Fagframteljendur hafa rýmri tímamörk en einstaklingar og lögaðilar.
 
Heimilt er að beita álagi á skattstofna ef framtali er ekki skilað á réttum tíma og eins ef framteljandi gefur rangar upplýsingar á framtali eða í fylgiskjölum.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑