Leiđbeiningar um rafrćn skil, sótt 19.5.2024 03:05:08


Ξ Valmynd

2.6.5  Frádráttur á móti öđrum styrkjum og starfstengdum greiđslum

Reitur 157:
Frádráttur frá öðrum styrkjum og starfstengdum greiðslum. Ef gerð er krafa um frádrátt vegna kostnaðar á móti styrkjum til sérstakra verkefna eða starfstengdum greiðslum, án þess að um sjálfstæðan atvinnurekstur sé að ræða, færist sá frádráttur í þennan reit.

Gera skal sundurliðaða grein fyrir kostnaðinum á sérstöku yfirliti sem fylgja skal framtalinu (sérstakt undirblað á vefframtali sem opnast þegar smellt er á Færa frádrátt). Heildarkostnaður skv. yfirlitinu færist síðan í reit 157. Frádráttur heimilast ekki á móti styrkjum vegna persónulegra útgjalda, s.s. vegna gleraugnakaupa, heyrnartækjakaupa, glasafrjóvgunar, krabbameinsskoðunar, ættleiðinga, tannviðgerða, sjúkraþjálfunar, sálfræðiþjónustu, dvalar á heilsustofnunum og útfarar.

 

Frádráttur vegna umönnunar:

Smelltu á kaflaheiti hér að neðan til að fá nánari upplýsingar um frádrátt á móti greiðslum vegna umönnunar.

 

Fara efst á síđuna ⇑