Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 4.10.2026 19:05:38


Ξ Valmynd

2.1  Skilríki á farsíma

Rafræn skilríki í farsíma virka í nær öllum tegundum síma, hvort sem það er snjallsími eða eldri farsími.

Skilríkið er vistað á SIM-kort símans þíns. Til þess að nota það þarf einungis farsíma, engin önnur tæki. Þá velur þú PIN númer sem þú stimplar inn í símann í hvert sinn sem þú notar rafræna skilríkið þitt. 

Rafræn skilríki í farsíma eru jafngild skilíkjum á korti.
► Sjá spurt og svarað á vefnum skilriki.is

Hér fyrir neðan er stutt myndband sem sýnir hvernig rafræn skilríki á farsíma virka til að auðkenna sig inn á vef, en sama virkni er notuð til að undirrita skjöl með rafrænum hætti.



Hvar fæ ég nýtt SIM kort?
Ef SIM-kortið styður ekki rafræn skilríki skaltu fara í næstu verslun þíns símafyrirtækis eða til endursöluaðila og fá kortinu skipt. Þú getur líka kannað hvort hægt sé að fá kortið sent heim.

►Hér getur þú valið þitt símafélag og skoðað næstu skref

Athugaðu að hafa með þér ökuskírteini, vegabréf eða nafnskírteini þegar virkja á rafræn skilríki, og auðvitað símann.

Setja upp rafræn skilríki í SIM kort símans
Áður en rafrænt skilríki er notað þarf að virkja það, en það er hægt að gera á afgreiðslustöðum skilríkjanna.

►Sjá lista yfir skráningarstöðvar

Þú hefur meðferðis gilt skilríki (vegabréf, ökuskírteini, nafnskírteini) og skrifar undir samning í tengslum við ný skilríki. Þú velur jafnframt eitt 4-8 stafa PIN númer til að nota á skilríkinu.

Komið hafa upp vandamál við nokkrar tegundir GSM síma við að setja upp rafræn skilríki, hér má sjá lista yfir þá síma

 

Fara efst á síðuna ⇑