Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 28.3.2024 21:09:10


Ξ Valmynd

1.8.8  Erlendir bankareikningar og peningalegar eignir á sundurliðunarblaði


Á sundurliðunarblaðinu með skattframtali 2023 er að finna upplýsingar sem borist hafa erlendis frá um erlenda bankareikninga og aðrar erlendar peningalegar eignir, t.d. erlend hlutabréf eða verðbréf.

Þarna getur einnig verið um að ræða inneign í séreignarlífeyrissjóði, en slíka inneign á ekki að færa á skattframtal.

Listinn er hugsaður til áminningar fyrir framteljendur um að færa erlendar eignir sínar inn á skattframtal sitt.

Tekið skal fram að hér er um að ræða upplýsingar sem bárust um slíkar erlendar eignir sem framteljandi átti í árslok 2021 (ekki 2022).

Framteljendur þurfa að yfirfara þennan lista og færa eftir atvikum handvirkt inn á framtalið þær erlendu eignir sem þeir áttu í árslok 2022 og fjármunatekjur af þeim á árinu 2022.

Athugið að listinn er ekki endilega tæmandi upptalning á þeim erlendu eignum sem kunna að vera í eigu framteljanda í árslok 2022!

Erlenda bankareikninga (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2022 og fjárhæð vaxta á árinu 2022) skal færa í kafla 3.2 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend verðbréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2022 og fjárhæð vaxta á árinu 2022) skal færa í kafla 3.3 á fjármagnstekjuhlið.

Erlend hlutabréf (ásamt fjárhæð eignar í árslok 2022 og fjárhæð arðs á árinu 2022) skal færa á eyðublað RSK 3.19.

Inneign í séreignarlífeyrissjóði skal ekki færa á skattframtalið.

 

Fara efst á síðuna ⇑