Leiðbeiningar um rafræn skil, sótt 21.12.2024 16:21:17


Ξ Valmynd

8.3.1  Útreikningur á tekjuskatti og útsvari

Vegna millifærslu á persónuafslætti hjá hjónum og sambúðarfólki þarf alltaf að reikna fyrst út gjöld þess sem hefur lægri tekjur.
 
Af fyrstu 4.445.783 kr. reiknast 17,0% tekjuskattur, af næstu 8.035.492 kr. reiknast 23,50% tekjuskattur og af stofni umfram 12.481.275 kr. reiknast 31,8% tekjuskattur. Útsvar er breytilegt eftir sveitarfélögum. Meðaltalið var 14,45% á tekjuárinu 2022.
 
Tekjuskatts- og útsvarsstofn 1)

13.500.000

 
17,0% tekjuskattur af 4.445.783 kr.             +  755.783  
23,50% tekjuskattur af 8.035.492 kr.           + 1.888.341  
31,8% tekjuskattur af 741.841 kr.                  +

323.954

 
Persónuafsláttur 2)                                        -

646.993

3)

Tekjuskattur    =

2.321.085

4)
     
Útsvar - 14,45% af stofni 5)                         +

1.950.750

 
Persónuafsláttur til greiðslu útsvars            -

0

6)

Útsvar til innheimtu   = 

1.950.750

 
  1. Samkvæmt tölulið 2.7 á framtali.
  2. Persónuafsláttur vegna tekna á árinu 2022 er kr. 646.993.
  3. Til viðbótar venjulegum persónuafslætti getur komið millifærður persónuafsláttur frá maka, sbr. 6).
  4. Ef reiknaður tekjuskattur er lægri en persónuafsláttur verður tekjuskatturinn 0 en ónýttur afsláttur færist niður í línuna: Persónuafsláttur til greiðslu útsvars.
  5. Útsvar er mismunandi eftir sveitarfélögum.
  6. Ónýttur persónuafsláttur gengur til greiðslu útsvars. Sé þá enn ónýttur afsláttur gengur hann til maka hjá samsköttuðum einstaklingum. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 22/37 af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur, en fellur að öðru leyti niður.

 

 

Fara efst á síðuna ⇑